umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hæstv. forsætisráðherra vill ekki ræða formið, sem er nýlunda hjá Samfylkingunni sem yfirleitt lætur allt snúast um formið. En þetta er spurning um meira en formið. Þetta er spurning um innihaldið og niðurstöðuna. Ég get skilið það ef Evrópusambandið getur vel hugsað sér að halda áfram þar sem frá var horfið á þeim grunni sem búið var að fallast á þá. En af hverju ætti ríkisstjórn Íslands að vilja það? Jú, það gæti vissulega þurft að fallast á ýmislegt fleira. Eins og Bændasamtökin benda á þá hefur regluverk Evrópusambandsins aukist um 58% frá því að horfið var frá viðræðunum á sínum tíma. Treystir hæstv. forsætisráðherra raunverulega uppleggi Össurar Skarphéðinssonar og Jóhönnu Sigurðardóttur í þessu máli og vill hæstv. forsætisráðherra halda áfram með þá umsókn? Því að ella er þetta blekkingarleikur, ekki umræða um formið heldur sönnun þess að ríkisstjórnin sé að reyna að blekkja fólk áfram. Vill hæstv. forsætisráðherra halda áfram með gömlu umsóknina á þeim grunni sem var samþykktur þá eða er þetta ný umsókn?