umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þoli það alveg að fólk sé ósammála mér í pólitík. Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar. Ég verð bara að segja alveg eins og er að ég er ekki hrifin af þessu nýmæli í íslenskri pólitík að það snúist allt um að það sé verið að plata og blekkja og ég veit ekki hvað og hvað. Hv. þingmaður getur alveg keyrt hart í mig efnislega en ég kann ekki að meta þetta upplegg. Að því sögðu vil ég segja: Það lá alveg fyrir við framlagningu þessarar þingsályktunartillögu að það myndi þurfa og það verða skilgreind samningsmarkmið. Það liggur alveg fyrir að þessi ríkisstjórn er … (Gripið fram í.)
(Forseti (ÞSv): Gefa ræðumanni hljóð. )(SDG: Ég bið ræðumann um að svara.)
Enn og aftur, frú forseti, að við getum leyft okkur að ræða þessi mál málefnalega, skynsamlega, án uppþots, án framíkalla, eins og alvarleiki sé raunverulega að baki, af því að þetta er alvarlegt mál sem krefst íhugunar. (SDG: Þú svarar? ) Það liggur alveg fyrir, frú forseti, að það verða skilgreind samningsmarkmið í þessu máli (Forseti hringir.) Fólk er meðvitað um það (SDG: Eftir atkvæðagreiðslu? )að heimurinn hefur breyst frá því að við lögðum af stað í síðustu ríkisstjórn. Þetta er ekki sama ríkisstjórn og fór síðast í þessa vegferð. Árið er ekki 2010. (Forseti hringir.) Það er nýtt fólk komið í brúna, það eru nýjar aðstæður í Evrópusambandinu og þetta verður unnið vel og örugglega inni í utanríkismálanefnd (Forseti hringir.) og ég treysti því að það verði unnið vel saman að þessum málum.
(Forseti (ÞSv): Forseti verður að biðja hv. þingmenn um að stilla sig í framíköllunum. )(SDG: Ég bið ráðherra um að svara.)
(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að stilla sig í framíköllum úr sal. )(SDG: Og ráðherrar.)
(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn um að stilla sig í framíköllum úr sal og sýna því starfi sem hér fer fram þá virðingu sem því ber. )(SDG: Og ráðherrar.)