loftbrú og aðgengi að miðlægri þjónustu.
Frú forseti. Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu í gærmorgun birtist viðtal við hæstv. innviðaráðherra þar sem ráðherrann var inntur eftir því hvort til stæði að leggja niður Loftbrúna, mikilvægan og nauðsynlegan stuðning við samgöngur og tengingu landsbyggðarinnar við höfuðborgina. Svör ráðherra um hvað nákvæmlega stendur til eru hins vegar með öllu óljós, fyrir utan það að hann viðurkennir að allt snúist þetta um peninga. Ráðherrann segist aftur á móti ekki vera inni í tæknilegum atriðum. Að vera ekki inni í tæknilegum atriðum — frú forseti, ef ráðherra málaflokksins er það ekki, hver þá? Þar fyrir utan er það vart tæknilegt atriði hvort stuðningur við landsbyggð er að minnka eða aukast. Hæstv. ráðherra þarf og á að geta svarað slíkum spurningum. Miðað við fyrri störf ríkisstjórnarinnar er ekki tilefni til mikillar bjartsýni enda virðist það vera sjálfstætt markmið hennar að grafa undan landsbyggðinni, hvort sem það er með vanhugsaðri samgönguáætlun, með því að skattleggja sjávarútveginn upp í rjáfur eða fella niður rækju- og skelbætur. Við bíðum bara eftir næsta höggi frá ríkisstjórninni. Ef það stendur til að draga úr framlögum í loftbrúna, stendur þá til að efla t.d. heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni?
Frú forseti. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvert er planið?