157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

Loftbrú og aðgengi að miðlægri þjónustu.

[10:50]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina sem mér er ljúft að svara. Fyrir það fyrsta: Það eru engin áform um að hætta með Loftbrúna, engin. Í öðru lagi er núverandi fyrirkomulag Loftbrúnnar þannig að afsláttur er 40% af flugmiðaverði, af sex leggjum á ári. Það eru um 62.000 manns sem hafa nýtt sér Loftbrúna á ári. Við erum einfaldlega að skoða það hvernig hægt er að nýta skattpeninga borgaranna betur í þessu fyrirkomulagi. Það er heldur enginn samdráttur fyrirhugaður varðandi fjárveitingar til Loftbrúarinnar en þessi liður er ekki verðbættur. Við erum að skoða framkvæmd hennar og hvernig hún geti orðið áhrifameiri, það verði betri nýting á skattpeningunum og jafnvel að íhuga til hvaða hópa hún gæti náð betur. Það hefur komið til tals og við erum að skoða það hvort það sé réttara jafnvel að hafa þetta fasta fjárhæð en ekki prósentur. Það eru ýmsar ástæður fyrir því, t.d. sú að þegar flugfélagið hækkar flugmiðaverð þá hækka líka framlögin fyrir hvern miða í krónutölu. Prósentan heldur að sjálfsögðu áfram. Leiðin sem var farin á sínum tíma var skoska leiðin. Það var önnur leið sem hægt hefði verið að fara, það er hin svokallaða norska leið og hún er alveg íhugunar virði líka. Það eru svona tæknileg atriði, hvernig þetta er gert í Noregi, hvernig þetta er gert í Skotlandi og hvernig þetta er gert á Íslandi. En á endanum snýst þetta um nýtingu á fjármagni og ég tel ekkert óeðlilegt þó að við færum í fasta krónutölu, en það á eftir að koma í ljós.