Loftbrú og aðgengi að miðlægri þjónustu.
Virðulegur forseti. Loftbrúin er til að styðja við landsbyggðina og er mikilvæg sem slík. Öll ríkisútgjöld snúist um peninga, höfum það alveg á hreinu, og þetta snýst um peninga líka. Það eru 600 millj. kr. sem fara í þetta mál. Það er fyrirsjáanlegt núna og það hefur gerst á undanförnum árum að við höfum þurft að bæta við fjármagni vegna þess að fjárveitingin er einfaldlega búin þegar líður að hausti, í september, október. Við ætlum að reyna að nýta peninginn út allt árið. Það er gríðarlega mikilvægt. Allar fyrirhugaðar breytingar á Loftbrúnni verða að sjálfsögðu settar í samráð og við treystum því að það komi þá góðar athugasemdir við þær breytingar sem við komum með og við tökum þannig lýðræðislega afstöðu til þeirra og þeirrar umræðu sem þar skapast. Ég veit ekki betur en að sátt sé um þessa Loftbrú. Við erum vissulega á eftirspurnarhliðinni og það má líka halda því fram með rökum að þetta leiði til hækkunar á flugmiðaverði vegna þess að á endanum er það alltaf spurningin: Hvað er kúnninn tilbúinn að borga fyrir flugmiðann? (Forseti hringir.) Ef hann er styrktur um 40% þá getur það verið enn þá hærra verð. Ég tel að við þurfum að skoða þetta frá grunni. Það er það sem við ætlum að gera og að sjálfsögðu í samráði við alla íbúa í landinu.