fjármögnun Fljótaganga.
Frú forseti. Við áttum hér ágæta umræðu í gær um fjármálaáætlun þar sem hæstv. innviðaráðherra var til svara. Sá sem hér stendur og hæstv. innviðaráðherra áttu skoðanaskipti um innviðafélag og fjármögnun Fljótaganga. Þegar kemur að því að horfa í fjármálaáætlun þá dylst það nú held ég engum að það skortir, alla vega sé ég það ekki og ég á fleiri skoðanabræður og -systur hvað það varðar að það er ekki fjármagn til Fljótaganga í fjármálaáætlun. Fljótagöng eru ekki hluti af samgönguáætlun, þ.e. fjármögnun þar, og hæstv. innviðaráðherra tók það skýrt fram í umræðum hér í gær að Fljótagöng færu ekki inn í innviðafélagið fyrr en að lokinni framkvæmd. Nú er manni vandi á höndum því sá sem hér stendur styður hæstv. ráðherra til góðra verka og til allrar innviðauppbyggingar og að bora göng og leggja vegi. Það skortir ekkert á það. En þegar manni er algjörlega fyrirmunað að átta sig á því hvaðan fjármagnið á að koma þá fara nú að renna á mann tvær grímur, þannig að ég vona það, frú forseti, að hæstv. innviðaráðherra sé hér með svör við þessari spurningu því það er mjög mikilvægt að það liggi fyrir hvernig eigi að fjármagna þessa framkvæmd. Það er mikil eftirvænting, eins og hæstv. innviðaráðherra veit, bæði á Siglufirði og í Fljótum og víðar eftir Fljótagöngum og því er mjög mikilvægt að það liggi fyrir hvernig eigi að fjármagna þau.