157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

fjármögnun Fljótaganga.

[10:58]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina, sem er mjög góð. Varðandi Fljótagöngin þá stefnum við ótrauð að því að hefja framkvæmdir sumarið 2027, þ.e. á næsta ári. Innviðafélagið kæmi að því að fjármagna hluta Fljótaganga, hinn hlutinn kæmi úr ríkissjóði. Við erum raunverulega að tala um það að það þarf að stofna innviðafélagið með lögum, fá stofnsamþykktir, fá það einfaldlega af stað. Þá þarf að taka afstöðu til þess hvaða verkefni fara í innviðafélagið. Það er gert með samningum mínum við innviðafélagið og svo kæmi fjármálaráðuneytið hinum megin við þær framkvæmdir, til að tryggja fjármögnunina. Svo þarf félagið sjálft að taka sjálfstæðar ákvarðanir. Fljótagöng eru þess eðlis að það yrði svokallað S-13 félag þar sem það er ekki fjárhagslega sjálfbært, umferðargjöldin í gegnum göngin myndu ekki greiða framkvæmdina. Það er augljóst mál að það þarf að vera fjármagnað í fjárlögum. Ég trúi því og treysti að það sé pólitískur vilji til að hefja framkvæmdir á næsta ári, næsta sumar. Ég býð hv. þingmann velkominn þegar við byrjum að grafa.