157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:06]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Mér hefur fundist talsvert mikið um það hér í þessum sal að það komi fram gagnrýni — nú er ég að tala almennt — á ráðherra um að þeir séu ekki að svara spurningum þegar mönnum líkar ekki svarið. Þetta er auðvitað ekki sami hluturinn. Vill hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson meina það að þegar hann talar um að verið sé að blekkja fólk í aðdraganda þeirrar umræðu um Evrópumál sem fram undan er — að þegar forsætisráðherra neitar því, og er einhvern veginn ekki sammála því, þá sé hann ekki að svara spurningunni? Er eina svarið sem hægt er að taka gilt við þessari spurningu að forsætisráðherra sé sammála formanni Miðflokksins um að verið sé að blekkja fólk, sem er ekki verið að gera? Mér finnst einnig furðulegt að það komi fram mikil gagnrýni á forseta þingsins fyrir það eitt að reyna að fá hljóð í salinn. Það hefur forseti margoft gert, alveg sama hvort um er að ræða stjórnarliða eða stjórnarandstæðinga.