157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:07]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég ætla að gangast við því að ræðumönnum sé ágætlega frjálst að svara spurningum með sínu nefi en ég held, frú forseti, að við verðum eiginlega að gera ráð fyrir því að það sé a.m.k. einhverju svarað en ekki látið algerlega dautt liggja eins og augljóslega var hér hjá hæstv. forsætisráðherra. Ég á líka erfitt með það að forsætisráðherra sjái ekki hversu alvarlegt það er að ætla sér að nota forsætisráðuneytið eins og einhverja flokksskrifstofu hjá Samfylkingunni. Mér finnst það bara fyrir neðan allar hellur. Ég held að það væri rétt að forsætisráðherra hreinlega biðjist afsökunar á því að þessi mistök hafi orðið. Ég skora á hana að gera það.