157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:08]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Forseti. Vegna athugasemdar hv. þm. Sigmars Guðmundssonar hér áðan tel ég rétt að útskýra fyrir hæstv. forseta í hvað er verið að vísa sérstaklega. Hæstv. forsætisráðherra upplýsti um það hér að hugsanlega yrði bara til ný umsókn eftir að búið væri að láta almenning, þjóðina, samþykkja að halda áfram viðræðum á grundvelli gömlu umsóknarinnar. Þetta gengur þvert á það sem hæstv. utanríkisráðherra hefur sagt sem heldur því ekki aðeins fram að umsóknin sé gjaldgeng heldur að hún sé virk, hvorki meira né minna, og það sé bara spurning um að halda henni áfram. Og ef það má ekki spyrja hæstv. forsætisráðherra, krefja hann svara, um hvað snúi upp og niður í þessu lýðræðismáli, eins og þau kjósa að kalla þetta, hvað má þá spyrja út í hér? Um hvaða svör má biðja ef ekki um svona grundvallarmál? Ég gerði athugasemdir við það að þegar ég ýtti á hæstv. forsætisráðherra að svara sérstaklega þeim spurningum sem til hans var beint um þetta grundvallaratriði þá brást hæstv. ráðherra við, ólíkt fyrri forsætisráðherrum, held ég megi segja, með því að biðja hæstv. forseta að þagga niður í spurningunum frekar en að svara þeim.