157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:09]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf):

Virðulegur forseti. Fólki er dálítið niðri fyrir hérna en ég ætla að fá að lýsa ánægju með það að búa í samfélagi þar sem stærsta vandamálið og það sem spjótin beinast að forsætisráðherra með er að forsætisráðherra hafi í gegnum aðstoðarmann sinn látið vita að hún ætli að leggjast á sveifina með sveitarstjórnarstiginu og leikskólastiginu og fylgja eftir pólitík Samfylkingarinnar, bak í bak með sveitarstjórnarfulltrúum Samfylkingarinnar. Þetta er stóra vandamálið, að við séum loksins komin með forsætisráðherra sem lætur sig sveitarstjórnarstigið raunverulega varða, lætur sig leikskólastigið raunverulega varða, lætur sig þau verkefni sem brenna á fólki í daglegu lífi raunverulega varða. Og nei, heyrðu, það var látið vita af því í gegnum netfang aðstoðarmanns hennar — nema hvað? Forsætisráðherra Samfylkingarinnar brennur auðvitað fyrir sveitarstjórnarstiginu, brennur fyrir leikskólastiginu og brennur fyrir því sem brennur á fólkinu í landinu. Skárra væri það nú. Og þvílík jákvæð tímamót, segi ég nú bara. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)