157. löggjafarþing — 95. fundur,  16. apr. 2026.

svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:12]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég kem hingað upp til að taka undir orð hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur og þeirra sem tóku undir orð hennar í upphafi. Ég hef nú reglulega komið inn á þetta hér undir liðnum fundarstjórn forseta og hvet virðulegan forseta til að gera gangskör að því og a.m.k. ræða þetta við ráðherrana og eftir atvikum taka samtal um það á forsætisnefndarfundi hvernig þessi liður er að þróast. Nú hafa fáir hér inni meiri reynslu af því að vera í stjórnarandstöðu en sá sem hér stendur og þessi liður og svör ráðherranna eru með allt öðrum hætti hjá þessari ríkisstjórn og ráðherrum hennar en áður hefur verið. Það er hending ef einni raunverulegri spurningu er svarað í hverjum fyrirspurnatíma, það er hending. Þetta er fyrir neðan allar hellur og ég hvet virðulegan forseta til að gera alla vega einhvern reka að því að þetta verði fært til betri vegar því að þetta er mikilvægur hluti af aðhaldshlutverki stjórnarandstöðu hvers tíma. Því fer nærri að búið sé að eyðileggja þennan dagskrárlið eins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa gengið um hann hingað til.