svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Frú forseti. Mig langar að taka undir orð formanns Sjálfstæðisflokksins, hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur og það sem hún sagði áðan. Vald forseta þingsins er mikið og hann er forseti okkar allra, ekki bara stjórnarmeirihlutans. Hér áðan sagði forseti þingsins að það skipti ekki máli um hvern ræddi en bara áðan, þannig að við nefnum það, undir spurningum hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur voru þingflokksformenn Flokks fólksins og Viðreisnar í háværu samtali u.þ.b. 20% ræðutímans í fyrri spurningu hv. þingmanns og forseti þingsins lét það algjörlega óátalið. Á milli bekkja. Þannig er staðan og þannig er þetta og það traust sem forseti þingsins ætlaði sér að vinna — að mínu mati tel ég töluvert langt í land með að það traust sé unnið miðað við þá stýringu á þinginu sem er hér í dag.