svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir gagnrýni hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, á svarleysi ráðherra hér margítrekað. En það er nú bara þannig að þegar menn hafa vondan málstað að verja þá er oft fátt um svör. Hér er hæstv. ríkisstjórn með allt í skrúfunni. Fjármálaáætlun fær falleinkunn frá fjármálaráði. Samgönguáætlun er sögð fullfjármögnuð en hér er innviðafélag sem eiginlega enginn veit hvernig nákvæmlega á að útfæra. Svona er hægt að telja áfram og áfram. Landskjörstjórn setur ofan í við hæstv. ríkisstjórn út af orðalagi á spurningunni. Við höfum ekki séð annað eins í ár og áratugi, jafn óvönduð vinnubrögð trekk í trekk. Þá er kannski ekkert skrýtið að það sé fátt um svör þegar spurt er.