áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Staðan er þessi: Þessi ríkisstjórn er búin að plotta með forsvarsmönnum Evrópusambandsins og hefur tekið gríðarlegan tíma í ferðalög og ferðir til Brussel til að koma með þá túlkun, sem hefur ekki verið til staðar af hálfu Evrópusambandsins í einn og hálfan áratug, að við séum með gilda aðildarumsókn. Allt í lagi. Þá skulu menn líka leggja spilin á borðið. Það er ekki í boði fyrir þing, og alls ekki þjóð, að við fáum ekki allar þær upplýsingar sem liggja fyrir í tengslum við þá aðildarumsókn sem Jóhönnustjórnin ákvað að hætta með eftir þrjú ár. Það er skylda þingsins og forystu þingsins að (Forseti hringir.) beita sér fyrir því að öll gögn verði lögð á borðið.