áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Ég get ekki annað en tekið undir orð hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, varðandi það að forseti skapi svigrúm á dagskrá þingsins sem allra fyrst til að hægt sé að ræða þetta, því að þau gögn sem nú hafa fundist og virðast, eins og hér er lýst á forsíðu Morgunblaðsins, hafa verið grafin einhvers staðar þar sem erfitt var að komast að þeim á heimasíðu utanríkisráðuneytisins og hvergi nefnd í tengslum við gögn sem eru lögð fram er varða þingmálið sem nú er til umfjöllunar í þinginu. Það er algerlega ótrúlegt. Sú mynd teiknast upp núna alveg skýr að þeir sem töldu málarekstur ríkisstjórnarinnar vera borinn áfram af blekkingum — það blasir við að sú tilfinning var rétt. Þarf ekki að kíkja í neinn pakka. Hann er galopinn og í honum er Evrópusambandið eins og það er. Þetta er bara leitt út með mjög skýrum texta (Forseti hringir.) sem utanríkisráðuneytið sjálft þýddi og birti á sínum tíma en ákvað síðan að gera ekki mikið með eða að lyfta í öllu falli ekki þegar þurfti að blekkja þjóðina til fylgilags nú um stundir.
Virðulegur forseti. Ég tek undir óskina (Forseti hringir.) um umræðu í þinginu, hvort sem það verður í skýrsluformi eða öðru. En utanríkisráðherra verður að gera hreint fyrir sínum dyrum.