157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

áframhald aðildarviðræðna við ESB.

[10:38]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Eins og komið hefur fram undir þessum lið þá liggur fyrir að í gögnum utanríkisráðuneytisins sjálfs koma fram upplýsingar sem staðfesta það sem margir í þessum sal hafa haldið fram, þ.e. að umræðunni og þessu ferli í aðdraganda þessarar boðuðu atkvæðagreiðslu er ekki fylgt eftir með réttum upplýsingum. Þetta kemur fram frá utanríkisráðuneytinu sjálfu. Það sem meira er þá kemur fram, af því að hér var nefnd þessi grein í Morgunblaðinu, forsíðugrein þess, þar kemur m.a. fram, af því að hér hefur mikið verið rætt um erlend afskipti af þessari þjóðaratkvæðagreiðslu og ótta við hana, að ESB muni beita sér til að tryggja stuðning borgaranna við aðildarferlið. Þannig að ég tek undir þær óskir sem hér hafa komið fram. Það verður að gefa svigrúm, frú forseti, til að taka þetta fyrir, skoða þessi gögn, því ef rétt reynist allt sem fram kemur í þessari forsíðufrétt Morgunblaðsins er alveg ljóst að hér er farið fram á fölskum forsendum.