157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

áframhald aðildarviðræðna við ESB.

[10:41]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Hv. þm. Sigmar Guðmundsson talar um blekkingatal og víkur hér úr sal. Ég get ekki tekið undir það. Gagnrýnin kemur til vegna tregðu stjórnarliða til að ræða með opnum og heiðarlegum hætti um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið og áhrif þess — hann var að ná sér í vatn, gott og vel — og afleiðingar þess að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Það er það sem við höfum verið að kalla á: Opin og heiðarleg samskipti hvað þetta varðar. Í því sambandi verð ég að geta þess að í þingsályktunartillögu Alþingis þegar umsóknarferlið var hafið var opinská umræða og það viðurkennt að í þessu ferli fælist að sjálfsögðu aðlögun að regluverki Evrópusambandsins. Í þessari skýrslu Evrópusambandsins, eða samningsviðmiðunum eða uppleggi sem hér er verið að fjalla um í dag, má finna sama orðalag. Um þetta verðum við að ræða bara heiðarlega. Í því sambandi verð ég að nefna viðmið Feneyjanefndarinnar þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslum sem gerir þá lágmarkskröfu (Forseti hringir.) að kjósendur séu upplýstir um áhrif þess að greiða atkvæði í slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er lágmarkskrafa.