áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Virðulegur forseti. Það er mér til efs að umræður í þingsal um nokkuð annað mál taki gögn frá 2010 og segi að þau trompi núverandi yfirlýsingar ráðamanna, hvort sem það er í einhverjum flokkum (Gripið fram í.) hér á þingi eða yfirhöfuð. (Gripið fram í.) Stjórnarandstaðan virðist vilja gera meira úr plaggi frá 2010, eins og Morgunblaðið, heldur en yfirlýsingum stækkunarstjóra Evrópusambandsins frá 6. mars sl. um að raunveruleikinn nú sé annar og staða heimsmála og taka eigi mið af þeim raunveruleika í nýjum viðræðum. Það er heldur ekki tekið mark á öðru forystufólki innan Evrópusambandsins eins og Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, einu stærsta ESB-ríkinu. (Gripið fram í.) Það eru einfaldlega breyttar aðstæður og hér er enn og aftur verið að reyna að leika þann leik að þeir sem eru með eða á móti (Forseti hringir.) samningum geti spáð fyrir um hvað kemur út úr ferlinu. Það getum við ekki heldur þurfum við að láta reyna á það í samningum á grundvelli nýrra yfirlýsinga en ekki plagga frá 2010.