áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni kærlega fyrir ræðuna. Þetta er skýrt dæmi um blekkingarnar. Nú er það þannig, virðulegi forseti, að Evrópusambandið er til. Og af því að hv. þingmaður Viðreisnar vísaði til Noregs: Hvað gerðu Norðmenn? Þeir kusu um það í alþingiskosningum, það var kosningamál, hvort þeir ættu að sækja um eða ekki. Þeir sem vildu fara í Evrópusambandið fengu meiri hluta og þeir sögðu: Við eigum að fara í Evrópusambandið út af þessu og þessu. Það að reyna að blekkja þjóðina með því að segja að við setjumst niður með Evrópusambandinu og bara spjöllum við þá og könnum hvað þeir vilja gera, það eru blekkingar. Allir sem kynna sér málin — undirritaður t.d. lærði í háskóla hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu og (Forseti hringir.) ef ég hefði svarað eins og hv. þm. Dagur B. Eggertsson hefði ég verið felldur.
Aðalatriðið er þetta: Komið með gögnin á borðið, ekki bara það sem Morgunblaðið er að afhjúpa núna heldur líka (Forseti hringir.) minnisblöðin í ríkisstjórninni, rýniskýrslurnar, allt þetta sem eru staðreyndir þannig að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun (Forseti hringir.) en ekki látið ríkisstjórnina blekkja. Ræða hv. þm. Dags B. Eggertssonar (Forseti hringir.) var hrein og klár, virðulegur forseti, blekking. Virðulegur forseti hefur slegið í bjölluna (Forseti hringir.) af minna tilefni heldur en þegar slík blekkingaræða er haldin.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)