157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

áframhald aðildarviðræðna við ESB.

[10:57]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég tek undir með þeim sem hér voru að tala um þessa vafasömu spurningu sem lögð verður fram fyrir þjóðina í ágúst og menn ætla að það sé enginn vafi á því að við erum að fara að aðlaga okkur að Evrópusambandinu strax og við setjumst við þetta samningaborð. Menn tala um blekkingar, blekkingarnar eru auðvitað alfarið stjórnarinnar að fara þannig í málið eins og ætlunin er. Það er einfaldlega: Annaðhvort erum við að fara að sækja um aðild að Evrópusambandinu eða ekki. Það er bara svo einfalt. Hvað varðar orð hv. þm. Dags B. Eggertssonar um að staða Íslands væri sterkari nú, það má vel vera. En hverjum treystum við? Þó að staðan sé sterk, treystum við Viðreisn til að leiða þessar viðræður? Treystum við virkilega Viðreisn til að leiða þessar viðræður? (Forseti hringir.) Nú nýverið var Viðreisn að ljúka samningum um makrílveiðar Íslendinga. Hvað gerðist þar? Hagsmunum Íslands (Forseti hringir.) var varpað fyrir róða í þeim samningum. Treystum við Viðreisn til að leiða þessar samningaviðræður? Nei.