157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

áframhald aðildarviðræðna við ESB.

[11:01]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Þetta er það sem við höfum kallað eftir hér í einhverjar vikur síðan utanríkisráðherra lagði þessa þingsályktunartillögu fram. Ég man að ég kallaði eftir því strax þann dag að ríkisstjórnin myndi vanda sig í allri upplýsingagjöf um þetta mál. Svo virðist ekki vera. Það er erfitt að fá upplýsingar. Það er erfitt að fá gögn og annað sem unnin voru þegar þetta aðlögunarferli átti sér stað hér fyrir rúmum 13, 14 eða 15 árum síðan. Hér hafa ráðherrar, bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra, sagt ítrekað: Við munum gæta hagsmuna Íslands. Það er eins og þær séu eina fólkið sem geti gætt hagsmuna okkar Íslendinga. Við munum gæta hagsmuna Íslands. Við munum ekki samþykkja samning sem ekki felur í sér yfirráð yfir fiskveiðilögsögu okkar. Segja samt aldrei full yfirráð. (Forseti hringir.) Ef þetta er samningsmarkmið ríkisstjórnarinnar þá geta þær hætt við þetta feigðarflan sitt strax vegna þess að Evrópusambandið hefur aldrei (Forseti hringir.) veitt neinu ríki yfirráð yfir sjávarútvegsauðlind þess. Við þurfum að deila henni með Evrópusambandinu í heild sinni. Það er staðreynd þannig að það er hægt að draga þetta mál til baka.