áframhald aðildarviðræðna við ESB.
Frú forseti. Við ræðum hér fundarstjórn forseta. Ég held að það sé mikilvægt að við höfum það öll í huga að málið er núna á forræði þingsins. Það er inni í tveimur nefndum, í vinnu þar. Ég verð að segja að þær upplýsingar sem liggja fyrir, alla vega í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, eru ekkert sérstaklega skýrar og það er kannski akkúrat vandamálið sem við erum að eiga við. Það er mikill vandi fyrir þingið að vinna að málinu svo vel sé þar sem upplýsingarnar sem við erum að fara í gegnum, væntanlega í báðum nefndum — það er nú töluvert langt á milli þeirra þegar kemur að röksemdafærslu í hvora átt á að fara. Það er vandi þingsins. En málið er á forræði þingsins og það er okkar í þingnefndum að koma því síðan hingað til síðari umræðu, væntanlega eftir sveitarstjórnarkosningar. Það gerist væntanlega ekki fyrir. Þannig að ég met það nú þannig að eftir því sem við vinnum betur og það verða skýrari upplýsingar sem liggja fyrir, (Forseti hringir.) hvort við erum að fara að ganga í Evrópusambandið eða ekki — um það á nú að þessi spurning að snúast. Við getum togast á fram og til baka um það (Forseti hringir.) hvað er í boði. En í mínum huga er þetta mjög einfalt mál: Já eða nei.