Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fréttir dagsins eru auðvitað afhjúpandi vegna þess að þar kemur skýrt fram, sem við auðvitað vissum, að auðvitað þurfum við að hlíta reglum Evrópusambandsins ef við viljum ganga inn í það. Ég tel að orðaskiptin við stjórnarliða hér áðan undir störfum þingsins sýni svo ekki sé um villst að ríkisstjórninni ber bæði að upplýsa sína stjórnarþingmenn og auðvitað þjóðina hvað þarna er á ferðinni. Ég ber fulla virðingu fyrir því ef fólk segir: Ég vil að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það er bara skoðun en menn geta ekki sett þjóðfélagið á annan endann með því að blekkja fólk um að Evrópusambandið sé eitthvað allt annað en það er.
Ég og virðulegur forseti vorum í stjórnmálafræðideild fyrir nokkrum árum og ef við hefðum svarað eins og stjórnarliðar svara hér á prófum þá hefðum við einfaldlega verið felld. Ég er hérna með eina bók, Inni eða úti?, þar sem Auðunn Arnórsson, sem seint verður talinn harður innmúraður Sjálfstæðismaður, skrifar um framkvæmd aðildarviðræðna. Hann segir, með leyfi forseta:
„Séð frá bæjardyrum Evrópusambandsins snúast aðildarviðræður í raun aðeins um það hvernig hið væntanlega nýja aðildarríki innleiðir alla gildandi sáttmála, löggjöf og stefnumið sambandsins (á vettvangi ESB tíðkast að vísa til þessa alls í heild undir heitinu „acquis“ upp á frönsku). Í reynd er þó alltaf eitthvað svigrúm til að sýna sveigjanleika. Í reynd er þó alltaf eitthvert svigrúm til að sýna sveigjanleika; oft er samið um sérstaka aðlögun að tilteknum reglum ESB, tímabundnar undanþágur og sérlausnir.“
Virðulegi forseti. Þetta liggur allt fyrir. Ég ber virðingu fyrir því að fólk vilji ganga í Evrópusambandið en það er ekki hægt að vera með ríkisstjórn sem ætlar að blekkja almenning með þeim hætti að segja að við munum setjast þarna niður og semja við þá að þeir breyti sínum stofnsáttmálum og öllu sínu regluverki. (Forseti hringir.) Þetta eru blekkingar, hreinar og klárar blekkingar, þessi málflutningur.
Virðulegur forseti. Það er líka mál þingsins hvernig á þessu máli er haldið og staðreyndir verða að fá að koma fram.