157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

Störf þingsins.

[11:34]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Mönnum hefur verið tíðrætt hér í dag um gögn sem þurfa að liggja fyrir þegar við göngum til atkvæða um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið í haust. Ég tek hjartanlega undir með hv. þingmönnum. Það eiga öll möguleg gögn að liggja fyrir þannig að þjóðin geti tekið upplýsta afstöðu. Andstæðingum Evrópusambandsaðildar og að einhverju leyti andstæðingum þess að við höldum þessa atkvæðagreiðslu í haust er tíðrætt um að það myndi ekkert breytast við að taka upp evru á Íslandi, það væri áfram undir okkur komið hvert vaxtastigið yrði. En aftur á móti tala menn um að það sé til eitthvað sem heitir evrópskt atvinnuleysi sem við myndum fá hér uppi á Íslandi.

Hvað segja tölurnar? Á Írlandi, sem dæmi, er atvinnuleysið 4,6%, eitthvað lægra en hér. Hagvöxtur 1,3%, aðeins meiri en hér, verðbólga er náttúrlega umtalsvert lægri og þar af leiðandi einnig stýrivextir og vextir á þeim lánum sem almenningi bjóðast við kaup á húsnæði. Malta, smáríki, eitt minnsta ríkið í Evrópusambandinu í dag og eyríki, samt með einn framkvæmdastjóra í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, einn ráðherra í ráðherraráði Evrópusambandsins. Þar var hagvöxtur umtalsvert hærri en hér á seinasta ári. 3,9% atvinnuleysi, talsvert lægra en hér, 3,5% verðbólga, talsvert lægri en hér, 2,3% stýrivextir, umtalsvert lægri, þeir sömu og á öllu evrusvæðinu. Malta er með evruna og þar af leiðandi eru þau lán sem neytendum bjóðast við kaup á húsnæði 2,85%–3,5%. Lúxemborg, land með umtalsvert hærri landsframleiðslu á mann en Ísland, þar er atvinnuleysi reyndar í hærra lagi, 6,9%, hagvöxtur svipaður og hér, 1,1%, verðbólga talsvert lægri og lán sem neytendum bjóðast við kaup á húsnæði — ég fann eina tölu, 2,95%. Danmörk, hagvöxtur talsvert hærri en hér, 2,2%. Verðbólga er talsvert lægri og lán sem neytendum bjóðast við kaup á húsnæði talsvert lægri.

Þetta eru einnig gögn sem þurfa að liggja fyrir þegar við göngum til atkvæða í haust. Mönnum hefur verið tíðrætt um (Forseti hringir.) að við höfum ekkert inn í Evrópusambandið að gera því að hagvöxtur hafi verið svo hár hér. (Forseti hringir.) En eins og fram hefur komið ítrekað þá hefur hann verið lítill sem enginn per mann, enda hefur hagvöxtur hér á landi fyrst og fremst verið drifinn áfram af fólksfjölgun. (Forseti hringir.)

Þetta eru einnig gögn sem þurfa að liggja fyrir þegar við göngum til atkvæða í haust.