markaðssetningarlög.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til markaðssetningarlaga. Frumvarp þetta felur í sér heildarendurskoðun á löggjöf um markaðssetningu. Lagt er til að ný heildarlög leysi af hólmi lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, lög um Neytendastofu og lög um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd.
Markmið þessarar heildarendurskoðunar er í fyrsta lagi að ný markaðssetningarlög tryggi virka samkeppni í viðskiptum og góða neytendavernd sem taki mið af tækniþróun undanfarinna ára. Í öðru lagi að lögin séu einföld, skýr, aðgengileg og tæknihlutlaus og leggi ekki óþarfabyrðar á atvinnulífið. Í þriðja lagi að tryggja eins og kostur er að ákvæði laganna sem innleiða Evrópugerðir endurspegli aðeins þær EES-skuldbindingar sem við eiga og gætt sé samræmis við orðalag þeirra.
Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Nefndin fjallaði um viðskiptahætti sem beinast að börnum og ungmennum. Í 2. mgr. 3. gr. og 15. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um sérstaka varkárni í viðskiptaháttum sem beinast að börnum og ungmennum vegna reynsluleysis þeirra og áhrifagirni, þar sem m.a. er bannað að hvetja til ofbeldis, bjóða óviðeigandi varning eða nýta sér félagslegt óöryggi og þrýsting um líkamlegt útlit. Í umsögnum voru gerðar athugasemdir við að 15. gr. væri of matskennd. Sömuleiðis var talið að orðalag um trúgirni barna í 2. mgr. 3. gr. væri lítillækkandi. Í fyrsta lagi telur meiri hlutinn að orðalag 15. gr. taki við af því hve fjölbreyttir viðskiptahættir geta verið og því er óhjákvæmilegt að því fylgi alltaf einhvers konar mat. Þá byggir 15. gr. að miklu leyti á siðareglum Alþjóðaviðskiptaráðsins um auglýsingar og markaðssetningu. Þessu til viðbótar vill meiri hlutinn benda á að Samband íslenskra auglýsingastofa hefur sömuleiðis sett sér siðareglur sem geyma sams konar reglur um sérstaka aðgát sem beri að sýna þegar auglýsingum er beint að börnum eða ungmennum eða þar sem þau koma fram. Í öðru lagi telur meiri hlutinn ekki þörf á að leggja til breytingu á orðalagi 2. mgr. 3. gr. Frumvarpið skilgreinir börn og ungmenni undir 18 ára aldri sem hóp neytenda sem sérstaklega þurfi að vernda. Orðalag 2. mgr. 3. gr. er afdráttarlaust enda felur það í sér rökstuðning fyrir því að aukin ábyrgð verði falin atvinnurekendum og börn og ungmenni látin njóta sérstaks vafa í þeim efnum.
Þá fjallaði nefndin um villandi athafnir í 5. gr. frumvarpsins, en þar segir að viðskiptahættir atvinnurekanda megi ekki fela í sér rangar upplýsingar eða upplýsingar sem á annan hátt, þ.m.t. vegna framsetningar, villa um fyrir eða eru líklegar til að villa um fyrir hinum almenna neytanda, jafnvel þótt þær séu réttar. Í umsögn til nefndarinnar kom fram sjónarmið þess efnis að orðalagið „jafnvel þótt þær [upplýsingar] séu réttar“ í ákvæðinu fæli í sér mótsögn og lagt til að það yrði fellt brott. Meiri hlutinn áréttar að finna má sama fyrirvara í 1. mgr. 6. gr. tilskipunarinnar sem ákvæðið innleiðir. Þá má benda á dóm Evrópudómstólsins í máli C-611/14. Málsatvik voru þau að umrætt fyrirtæki auglýsti mánaðargjald af sjónvarpsáskrift á 99 danskar krónur. Í auglýsingunni kom sömuleiðis fram en á töluvert minna áberandi hátt hálfsársgjald upp á 399 danskar krónur. Taldi dómstóllinn að túlka bæri 1. mgr. 6. gr. tilskipunarinnar á þann veg að viðskiptahættir sem felast í því að verð á vöru sé sundurliðað og aðeins lögð áhersla á einn hluta þess væru villandi. Slíkir viðskiptahættir væru í fyrsta lagi líklegir til þess að gefa neytanda þá röngu hugmynd að honum hefði verið boðið hagstætt verð, og í öðru lagi að valda því að neytandi tæki ákvörðun um viðskipti sem hann hefði ekki tekið annars. Með hliðsjón af framangreindu telur meiri hlutinn að það væri varhugavert ef orðalagið „jafnvel þótt þær séu réttar“ félli brott úr 1. mgr. 5. gr. frumvarpsins og atvinnurekandi sem stundaði sams konar viðskiptahætti gæti skýlt sér á bak við það að réttar upplýsingar hefðu þrátt fyrir villandi framsetningu komið fram.
Nefndin fjallaði að auki um meginreglu um íslensku sem kveðið er á um í 14. gr. frumvarpsins. Í umsögnum komu fram andstæð sjónarmið um ákvæðið. Varað var við því að í ákvæðinu felist í raun bann við birtingu auglýsinga á almannafæri á öðrum tungumálum en íslensku og bann við kynningum atvinnurekenda á afurðum á öðrum tungumálum, þ.m.t. auglýsingum á skiltum, matseðlum veitingastaða og upplýsingabæklingum verslana. Á hinn bóginn var talið að 2. málsliður 1. mgr. ákvæðisins um að heimilt sé að auglýsing sé eingöngu á öðru tungumáli en íslensku hafi hún beinst aðeins að erlendum neytendum væri óþarfur. Meiri hlutinn telur 14. gr. frumvarpsins fela í sér skynsamlegan milliveg. Með því er sérstaklega gætt að íslenskri tungu en á sama tíma er tekið tillit til aðstæðna sem hópur atvinnurekenda er í. Meiri hlutinn telur undanþáguna eiga rétt á sér til að mæta ákveðnum aðstæðum atvinnurekenda án þess að kröfur til þeirra verði meira íþyngjandi en nauðsyn krefur.
Nefndin fjallaði sömuleiðis um sáttaumleitan. Samkvæmt 29. gr. frumvarpsins skal Neytendastofa leitast við að leysa mál með sáttaumleitan, sem er aðalúrræði stofnunarinnar til að tryggja að atvinnurekendur fylgi lögum og bæti háttsemi sína til frambúðar. Neytendastofa gerði athugasemd við að geta ekki lagt á sektir vegna brota á gerðum sáttum, sem gæti dregið úr vilja stofnunarinnar til að nýta úrræðið. Meiri hlutinn bendir hins vegar á að ef atvinnurekandi rýfur sátt eða lætur ekki af ólögmætri háttsemi geti stofnunin rannsakað málið að nýju og beitt stjórnvaldssektum. Neytendastofu er ekki skylt að leita sátta í öllum málum heldur ræður alvarleiki brota úrræðavali hverju sinni. Þá er það mat stofnunarinnar hvort tillögur að úrbótum séu fullnægjandi, en annars er heimilt að grípa til harðari aðgerða án frekari málamiðlana. Meiri hlutinn leggur áherslu á að sáttaumleitan sé áfram meginregla enda sé hún skilvirk, kostnaðarhagkvæm og fyrirbyggjandi aðferð til að tryggja rétta viðskiptahætti.
Nefndin ræddi einnig 33. gr. frumvarpsins um stjórnvaldssektir og felur ákvæðið í sér breytingar á gildandi lögum. Í 3. mgr. ákvæðisins segir að hámarksupphæð stjórnvaldssekta skuli vera allt að 4% af heildarveltu síðasta rekstrarárs hjá atvinnurekanda eða jafnvirði 2 millj. evra í íslenskum krónum, hvort heldur sé hærra. Með því móti er lagt til að fjárhæðir stjórnvaldssekta verði hækkaðar og tengdar veltu. Þá er mælt fyrir um ítarleg sjónarmið sem líta skuli til við ákvörðun sekta í ákvæðinu sjálfu til þess að gera beitingu þeirra skýra og fyrirsjáanlega. Með 33. gr. er jafnframt innleitt viðurlagaákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins um nútímavæðingu þar sem kveðið er á um að viðurlög skuli vera skilvirk, í réttu hlutfalli við brotið og hafa varnaðaráhrif. Í gildandi lögum nr. 57/2005 er kveðið á um stjórnvaldssektir í 22. gr. og geta sektir numið allt að 10 millj. kr. Sú hámarksupphæð hefur verið óbreytt frá gildistöku laganna árið 2005. Frá þeim tíma hefur orðið veruleg verðlagsþróun og núvirði fjárhæðarinnar í byrjun árs 2026 reiknast tæplega 30 millj. kr. Hámarkið hefur þar af leiðandi ekki fylgt verðlagsþróun og endurspeglar ekki þau varnaðaráhrif sem stefnt var að með setningu laga nr. 57/2005. Í umsögn til nefndarinnar er bent á að frumvarpið gangi lengra en tilskipun um nútímavæðingu krefst með því að láta sömu sektarupphæðir gilda um öll brot. Samkvæmt tilskipuninni eigi hámarksektir einungis við um víðtæk brot eða brot sem ná yfir landamæri en í frumvarpinu eru sektarákvæðin hvorki bundin við slík tilvik né eingöngu við reglur sprottnar úr EES-gerðum. Meiri hlutinn bendir á umfjöllun í greinargerð um þróun stjórnvaldssekta í neytendarétti annars staðar á Norðurlöndum. Þar kemur skýrt fram að þróunin hafi verið í átt að veltutengdum sektum með fastmótuðum sjónarmiðum við ákvörðun þeirra. Þá séu hámarkssektir í öðrum norrænum ríkjum hærri en kveðið sé á um í frumvarpinu og alla jafna hafi ekki verið farin sú leið við innleiðingu tilskipunarinnar að gera greinarmun á innlendum og erlendum brotum. Í greinargerð með frumvarpinu er rökstutt hvers vegna lagt er til að farin verði sú leið að sama sektarákvæði eigi við óháð því hvort brot bitni einungis á íslenskum neytendum eða neytendum í öðrum aðildarríkjum EES-samningsins. Kemur þar m.a. fram að brot gegn íslenskum neytendum kunni að vera jafn umfangsmikil og alvarleg og brot sem bitni á neytendum í öðrum ríkjum samhliða. Þá gæti eftirlit Neytendastofu orðið óskilvirkara ef ákvörðun um sektarramma væri háð ítarlegri rannsókn á útbreiðslu brotsins í öðrum ríkjum. Meiri hlutinn áréttar einnig þau nýmæli sem fram koma í 4. mgr. 33. gr. frumvarpsins. Þar eru tilgreind sérstaklega þau viðmið sem líta ber til við ákvörðun fjárhæðar sektar. Markmið þeirra er að greiða fyrir samræmdari beitingu viðurlaga innan EES-svæðisins. Þá undirstrikar meiri hlutinn þá skyldu stjórnvalda við ákvörðun fjárhæðar stjórnvaldssektar að hún skuli ávallt byggjast á málefnalegum sjónarmiðum. Sömuleiðis þarf slík ákvörðun að uppfylla jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og meðalhófsreglu í 12. gr. laganna. Hafi löggjafinn mælt fyrir um matskennd sjónarmið sem stjórnvald verður að horfa til við ákvörðun fjárhæðar sektar leiðir það af meginreglu stjórnsýsluréttar um skyldubundið mat að taka þarf fullt tillit til þeirra.
Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar í nefndaráliti meiri hlutans.
Undir álit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Arna Lára Jónsdóttir, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Pawel Bartoszek og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir.
Herra forseti. Að svo mæltu legg ég til að málið fái eðlilegan framgang innan þings.