157. löggjafarþing — 96. fundur,  17. apr. 2026.

þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.

511. mál
[17:07]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Sigmundur Ernir Rúnarsson) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið. Frumvarpið er flutt af stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í heild sinni og það er ánægjulegt, herra forseti, að bæði það mál sem ég flutti hér áðan og þetta mál eru í fullri samheldni og sátt innan stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Það er góður bragur á því.

Á yfirstandandi löggjafarþingi hefur mátt gæta aukins áhuga á þjóðfánanum. Þremur þingmálum hefur verið útbýtt sem varða þjóðfána Íslendinga; frumvarpi frá Guðrúnu Hafsteinsdóttur, frumvarpi frá Karli Gauta Hjaltasyni og þingsályktunartillögu frá þeim sem hér stendur. Tvö síðarnefndu málin eru komin til umfjöllunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Öll málin eiga það sammerkt að flutningsmenn vilja auka notkun þjóðfánans en gæta við það virðingar hans. Þá hefur verið aukin umræða í samfélaginu um að rýmka reglur um notkun þjóðfánans og hafa þingmenn fengið margar áskoranir í þeim efnum.

Við umfjöllun nefndarinnar um þingmálin tvö hefur skýrlega komið í ljós sá vilji að rýmka reglur um fánatíma, þó þannig að virðingar hans verði gætt. Samhliða þeirri umfjöllun hefur nefndin orðið þess áskynja að margir skilja fánareglur svo að þær séu strangari en þær eru í raun og veru. Það er því mat nefndarinnar að orðið sé tímabært að lög um þjóðfána Íslendinga verði endurskoðuð í heild sinni með það fyrir augum að auka notkun þjóðfánans, þó þannig að borin verði tilhlýðileg virðing fyrir honum. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hvetur því forsætisráðherra til að ráðast í slíka endurskoðun.

Herra forseti. Þangað til ráðist verður í slíka endurskoðun vill nefndin koma til móts við ákall þjóðarinnar um aukna notkun þjóðfánans. Leggur nefndin því til eftirfarandi breytingar sem ég geri nú grein fyrir. Í fyrsta lagi er lagt til að meginreglur um fánatíma verði teknar upp í lög. Í gildandi lögum um þjóðfána Íslendinga er það alfarið á hendi ráðherra að mæla fyrir um hve lengi dags halda megi þjóðfánanum við hún. Í frumvarpi því sem varð að lögunum var hins vegar að finna tillögu um tiltekinn fánatíma en við þinglega meðferð málsins var fallið frá þeirri tillögu. Niðurstaðan varð sú að fánatími skyldi ákveðinn með forsetaúrskurði, en nú er það gert með reglugerð. Nefndin leggur því til að sú regla um fánatíma sem nú er að finna í reglugerðinni verði tekin upp í lögin. Í annan stað leggur nefndin til þá breytingu sem lengi hefur verið kallað eftir sem felur í sér að frá 1. maí til 15. ágúst verði heimilt að hafa þjóðfánann uppi allan sólarhringinn.

Forseti. Ég hef gert grein fyrir málinu og legg til að það gangi til 2. umræðu. Ég ítreka hér í lok minnar framsögu að samstaða í nefndinni var eindregin. Málið var unnið í mjög góðri sátt og samvinnu allra nefndarmanna í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og það er góður bragur á þessu verki hennar.