varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Grímur Grímsson muni ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni og frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Sigurður Helgi Pálmason verði fjarverandi næstu daga. Einnig hafa borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Diljá Mist Einarsdóttir og Vilhjálmur Árnason verði fjarverandi á næstunni. Þá hafa borist bréf frá Sigríði Á. Andersen og Snorra Mássyni um að þau verði fjarverandi næstu daga.
Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Pétur Björgvin Sveinsson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll, 1. varamaður á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi, Elín Íris Fanndal, 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Brynjar Níelsson, 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Ingveldur Anna Sigurðardóttir, 2. varamaður á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, Bessí Þóra Jónsdóttir, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll og 1. varamaður á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Þorsteinn B Sæmundsson.
Pétur Björgvin Sveinsson, Elín Íris Fanndal, Brynjar Níelsson, Ingveldur Anna Sigurðardóttir og Þorsteinn B Sæmundsson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.