157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

viðbrögð við álitsgerð fjármálaráðs um fjármálaáætlun.

[15:20]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Hæstv. ráðherra segir oft hluti sem hljóma vel. Hann sagði nýverið að hann hefði lagt fram fjármálaáætlun sem ætti að hjálpa okkur gagnvart verðbólgunni. Hæstv. fjármálaráðherra hefur þann sið að taka ekki mikinn þátt í umræðum um sín eigin mál en ég vil þess vegna núna nota tækifærið og spyrja hæstv. ráðherra út í álitsgerð fjármálaráðs. Þar eru tveir doktorar í hagfræði og einn með mastersgráðu og þeir hafa það lögbundna hlutverk að rýna fjármálaáætlun. Ég get auðvitað ekki farið yfir allar athugasemdir, þær eru gríðarlega margar, en ef við tökum þær helstu sem maður tekur út þá er rétt að þar er sagt að það sé ekki hvikað frá markmiðum um hallalaus fjárlög. En svo koma 13 alvarlegar athugasemdir.

Eins og t.d., virðulegur forseti: „Vísitölutenging almannatrygginga ógnar sjálfbærni opinberra fjármála. Vísitölutenging almannatrygginga kallar á endurskoðun útgjaldahámarks. Framkvæmd stöðugleikareglu er ógagnsæ og óljóst er hvernig hún eigi að stuðla að jafnvægi í afkomu.“ Svo segir, virðulegur forseti: „Verðbólguvæntingar eru enn háar og staða og horfur opinberra fjármála virðast ekki draga úr þeim svo neinu nemi.“

Virðulegi forseti. Ég vil biðja hæstv. ráðherra — vegna þess að þetta skiptir máli, það er komin fram álitsgerð sem er mjög skýr með mjög alvarlegum athugasemdum. Það þýðir, eins og kemur fram í álitsgerðinni, að ríkisstjórnin er ekki að gefa skilaboð sem hjálpa til við að ná niður verðbólgunni. Fyrir utan það að það sem hefur verið gagnrýnt þegar það var lögfest, eins og vísitölutryggingin, hefur miklu neikvæðari áhrif en kom fram í umræðunni þá, t.d. varðandi útgjaldaregluna. Ég spyr þess vegna hæstv. ráðherra: Á ekkert að bregðast við þessu?