viðbrögð við álitsgerð fjármálaráðs um fjármálaáætlun.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir spurninguna. Nú hefur hv. þingmaður haldið því nokkrum sinnum fram að ég taki ekki þátt hér í umræðum um mín mál. Ég kannast alls ekki við hvað hann er að fjalla um og bið hann að kynna sér viðveru mína og þátttöku í umræðum áður en hann slær slíku fram.
Varðandi umsögn fjármálaráðs þá eru þar margar góðar ábendingar en þær ábendingar sem hv. þingmaður nefnir, eins og t.d. er varða eftirfylgd með stöðugleikareglu, kom fjármálaráð einnig með í fyrra og því var þar svarað. Áhyggjur fjármálaráðs, og þær eru eðlilegar, snúa að því að stöðugleikaregla var sett þegar fjármál ríkisins voru í mjög erfiðri stöðu, skuldir yfir skuldaviðmiði og verulegur langvarandi halli á rekstri ríkissjóðs. Fjármálaráð benti á að stöðugleikareglan ein og sér gæti ekki tryggt sjálfbærni ríkisfjármálanna — og það er rétt. Þess vegna hvíla lög um opinber fjármál á tveimur stoðum, ekki einungis stöðugleikareglunni heldur einnig skuldaviðmiði sem lagt hefur verið fram í fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar. Þessi fjármálaáætlun er í fullu samræmi við þá fjármálastefnu eins og fram kemur í áliti fjármálaráðs. Þannig að þegar skuldastaðan er yfir skuldaviðmiði þá er meginmarkmiðið með stöðugleikareglunni að ná aftur tökum á skuldastöðunni, ekki að auka eða nýta það svigrúm sem stöðugleikareglan gefur hvað varðar vöxt ríkisútgjalda heldur þvert á móti að nýta það ekki. (Forseti hringir.) Það er einmitt gert í þessari fjármálaáætlun.