157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

viðbrögð við álitsgerð fjármálaráðs um fjármálaáætlun.

[15:26]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir ítrekaða spurningu. Það er auðvitað ekki rétt hjá hv. þingmanni að það sé ekkert gert með álit fjármálaráðs og það hefur vandlega verið horft til þeirra ábendinga sem síðast komu fram við gerð þessarar fjármálaáætlunar og einmitt komið til móts við þau sjónarmið sem snúa að sjálfbærni og stöðugleikareglunni.

Varðandi síðan áhrif ríkisfjármálanna á verðbólguvæntingar þá er þar um sögulegt vandamál að etja, sögulegt vandamál þar sem traust á ábyrgri fjármálastjórn vegna aðgerða undangenginna ára hefur beðið verulegan hnekki, og að byggja það traust upp aftur tekur tíma. Það er ekki mikið annað sem hægt er að gera í gegnum ríkisfjármálin annað en að falsa verðlag, sem á endanum er kostnaður fyrir ríkissjóð sem einhvern veginn þarf að fjármagna. Þess vegna þarf ábyrgð og sterk bein til að snúa þessari þróun við, endurreisa þessa trú (Forseti hringir.) vegna þess að það er rétt sem fjármálaráð segir; það að ákvarðanir ríkisins í opinberum fjármálum hafi ekki áhrif á verðbólguvæntingar er djúpstætt og mjög alvarlegt vandamál.