framlög jöfnunarsjóðs til grunnskóla á Suðurnesjum.
Frú forseti. Fyrir nokkru sótti ég vorfund Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum þar sem komu fram alvarlegar upplýsingar. Grunnskólar á Suðurnesjum fá ekki fullnægjandi fjármagn, raunfjármögnun er lægri en annars staðar þrátt fyrir að þjónustuþörf barna á svæðinu sé mun meiri. En hvers vegna er það svo? Jú, samkvæmt upplýsingum frá sambandinu eru í fyrsta lagi börn af erlendum uppruna á svæðinu nærri 28% sem er langt umfram landsmeðaltal. Í öðru lagi er hlutfall barna frá lágtekjuheimilum á Suðurnesjum 22% hærra en vænta mætti miðað við hlutfall barna á svæðinu. Í þriðja lagi er hlutfall fatlaðra nemenda í sérúrræðum í grunnskólum 91% hærra en vænta mætti miðað við fjölda barna í landshlutanum. Allt þetta, virðulegi forseti, kallar á meiri stuðning, meiri sérfræðiþjónustu og meira fjármagn sem jöfnunarsjóður nær ekki utan um í dag. Í útgjaldastuðli sjóðsins er aðallega horft á skólastarf, landfræðilega stöðu og fasteignamat. Hann nær ekki yfir þætti eins og tungumálaþörf, fátækt og sérþarfir að fullu leyti. Samtökin telja að sjóðurinn skili einungis um 72–79 kr. af hverjum 100 kr. sem raunveruleg þjónustuþörf barna kallar á. Mismunurinn er þá ekki fjármagnaður og lendir á sveitarfélögum o.s.frv.
Virðulegi forseti. Það að fjárfesta ekki hér hefur áhrif. Það hefur áhrif á stöðu barna fram í tímann. Gögn úr íslensku æskulýðsrannsókninni staðfesta þetta. Þau sýna að líðan barna á Suðurnesjum er góð í upphafi, þökk sé þrotlausri vinnu margra, en hún versnar kerfisbundið eftir því sem þau eldast og líðan þeirra versnar hraðar en annars staðar á landinu. Sérstaka athygli vekur staða stúlkna. Í 10. bekk á Suðurnesjum upplifa 76% stúlkna kvíða vikulega og 22% hafa skaðað sig vísvitandi sem er mun hærra hlutfall en landsmeðaltal. (Forseti hringir.) Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra, sem ég veit að gefur þessum málefnum gaum: Hyggst ráðherrann beita sér fyrir því að (Forseti hringir.) úthlutunarkerfi jöfnunarsjóðs verði endurskoðuð með þetta í huga eða öðrum stuðningsliðum bætt við þannig að (Forseti hringir.) úthlutun til grunnskólanna nái yfir þessa þætti líkt og þjónustuþörf barna á Suðurnesjum er gott dæmi um?
(Forseti (ÞSv): Forseti biður þingmenn um að virða ræðutímann.)