157. löggjafarþing — 97. fundur,  20. apr. 2026.

framlög jöfnunarsjóðs til grunnskóla á Suðurnesjum.

[15:38]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka Höllu Hrund Logadóttur fyrir mjög góða fyrirspurn. Hvað lýtur að framlegð til grunnskólans þá eru þetta miklar og stórar áskoranir eins og hv. þingmaður bendir réttilega á og er það í rauninni frekar í samtali við innviðaráðherra sem fer með jöfnunarsjóðinn okkar. Við þurfum að endurskoða hvernig honum verður beitt. Það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður nefnir; það eru mjög miklar áskoranir og hefur orðið meiri fjölgun og stærri áskoranir á þessu svæði heldur en víðast hvar annars staðar. Þannig að ég segi það að þetta er stórt verkefni og ég hef sannarlega einsett mér að vera það verkfæri sem gefur öllum börnunum okkar jöfn tækifæri, hvar sem þau búa á landinu. Ef það eru krónur og aurar sem út af standa þá verðum við einfaldlega að sækja þá, það liggur alveg fyrir. Það er til ríflegt fé í jöfnunarsjóði sem lýtur einmitt að málefnum barna og við þurfum bara að sjá til þess að því sé úthlutað í takt við þá þörf sem við erum raunverulega að mæta hér víðs vegar um landið. En þarna, eins og hv. þingmaður réttilega bendir á, eru stórar áskoranir sem þarf að mæta.