framlög jöfnunarsjóðs til grunnskóla á Suðurnesjum.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég verð að segja að við sjáum ekki þá breytingu sem við viljum sjá, þá áherslubreytingu á þennan málaflokk núna ef við horfum t.d. á fjármálaáætlun, þannig að ég vil hvetja hæstv. ráðherra, sem ég veit að er annt um þetta málefni, að sýna í verki að hér verði gerð bragarbót á. Því að börn á Suðurnesjum eiga ekki að vera annars flokks í okkar kerfi. Mig langar til að fylgja því eftir af því að það er fleira sem mæðir á þegar kemur að menntun ungmenna á Suðurnesjum sem tengist framhaldsskólastiginu. Nýverið sagði skólameistarinn upp störfum sem virtist tengjast ósætti sem snýr að tímalínunni varðandi uppbyggingu skólans. Skólinn hefur fengið tilnefningar sem fyrirmyndarstofnun og þar er gríðarlega mikið og fjölbreytt starf í gangi á þessu tekjulága viðkvæma svæði. Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra: Stendur til að flýta tímaáætluninni sem kynnt hefur verið varðandi uppbyggingu og viðbyggingu við skólann og er ekki þörf á því að nýta sérstaklega sumarið svo að við missum ekki úr næsta vetur?