Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Fjöldi Íslendinga og erlendra ferðamanna stundar hestamennsku sem óhætt er að segja að sé stór hluti menningar okkar. Hestamennska er vinsæl og gefandi íþrótt fyrir alla aldurshópa. Við megum hins vegar ekki gleyma því að hestar eru stór, lifandi og kraftmikil dýr sem geta brugðist óvænt við og þá jafnvel með alvarlegum afleiðingum. Það fylgir því hestamennsku ákveðin slysahætta. Höfuðáverkar eru ein afleiðing þessara slysa. Fall af hestbaki eða spark frá hrossi getur valdið ómældu líkamstjóni á höfði, heilahristingi, höfuðkúpubroti, heilaskaða og jafnvel dauða. Viðurkenndir reiðhjálmar eru hannaðir til að draga verulega úr og koma í veg fyrir þá hættu. Fjölmörg dæmi eru um alvarleg slys tengd hestamennsku hér á landi sem erlendis. Dæmi eru um óafturkræfa höfuðáverka. Reynsla knapa ein og sér kemur ekki alltaf í veg fyrir alvarleg slys. Hjálmanotkun er sem betur fer þegar algeng meðal hestafólks en þegar öryggi og mannslíf er annars vegar ætti það auðvitað ekki að vera valkvætt að nota hjálm, það á að vera lögbundin skylda. Lögfesting á notkun reiðhjálma myndi verja börn, ungmenni og fullorðna og draga úr líkum á alvarlegum slysum. Lögfesting reiðhjálmanotkunar myndi einnig draga úr kostnaði samfélagsins vegna meðferðar og endurhæfingar.
Að lokum vil ég segja þetta: Notkun mótorhjólahjálma er þegar fest í lög og það er löngu tímabært að lögfesta notkun reiðhjálma líka. Ef slys verða getur hjálmur skipt öllu máli og jafnvel bjargað mannslífi. Ég treysti því að okkar góða ríkisstjórn taki þetta til athugunar.