157. löggjafarþing — 98. fundur,  21. apr. 2026.

Störf þingsins.

[13:33]
Horfa

Grétar Mar Jónsson (Flf):

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að tala um sæhesta en ég ætla að tala um dagblaðsgrein sem birtist í dönskum fjölmiðli um síðustu helgi. Þar fékk fiskveiðistjórnarkerfið á Íslandi falleinkunn og Alþingi Íslendinga síðustu áratugi falleinkunn líka fyrir spillingu og alls konar gjörðir sem eru ekki þingi neinnar þjóðar sæmandi. Við erum að tala hér um brottkast á fiski. Við erum að tala um ísprufusvindl. Við erum að tala um vigtarsvindl. Við erum að tala um hreinlega þjófnað á verðlagningu á fiski. Það hefur mjög slæm áhrif á íslenskan sjávarútveg að fá svona umfjöllun frá fjölmiðlum erlendis frá, ég tala nú ekki um virtum fjölmiðlum eins og í þessu tilfelli sem eru lesnir víða um heim. Þetta gefur í rauninni fiskveiðistjórnarkerfinu á Íslandi falleinkunn. (Gripið fram í: ... handónýtt. )Það er vandamálið að fiskveiðistjórnarkerfið okkar er handónýtt og þarf að skipta um, fara úr aflamarkskerfi yfir í sóknardagakerfi. Ég hef lagt það til að við hér á Alþingi myndum ákveða að hafa hér umræðu um (Forseti hringir.) fiskveiðistjórnarkerfið í sérstakri umræðu.