Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Verðmætasköpunin verður ekki til á Alþingi eða hjá hinu opinbera. Hún verður til úti í samfélaginu hjá fólkinu sem leggur sparifé sitt undir, tekur áhættu, stofnar fyrirtæki, ræður starfsfólk og heldur samfélaginu gangandi. Án einkaframtaks verður engin verðmætasköpun. En ríkið stækkar, skattar og gjöld hækka, tónninn gagnvart atvinnulífinu harðnar og hvatar til að leggja sig fram og skapa verðmæti minnka. Þetta er þróun sem getur ekki gengið til lengdar. Atvinnurekendur eru ekki vandamál heldur undirstaða samfélagsins. Þeir skapa störf, greiða laun og standa undir skatttekjum. Þegar stjórnvöld gleyma því veikja þau grunninn sem allt annað byggir á. Síðasta sumar var blásið í lúðrana og boðað verðmætasköpunarhaust sem ekkert varð úr. Við tók verðhækkunarvetur undir forystu ríkisins. Nú er boðað verðlækkunarsumar með þeim undirtóni: Lækkið verðið, annars er okkur að mæta. Verið er að endurvekja úreltar hugmyndir frá síðustu öld sem hefur ítrekað verið sýnt fram á að virki ekki; hámarksverð og verðstýringarnefnd, leigubremsa, sykurskattur og áróðursherferðir ríkisstjórnarinnar. Áður en við vitum af breytist verðstýringarráðið í verðstýringarstofnun ríkisins með hundruðum starfsmanna. Forræðishyggjan er alger; stjórna á því hvernig við ferðumst, hvernig við byggjum, hvernig lán við tökum, á hvaða verði við seljum vörur, jafnvel hvað við borðum. Við verðum að gera betur. Frelsi til athafna, lágir skattar, einfalt regluverk og stöðugleiki eru forsendur framfara.