157. löggjafarþing — 98. fundur,  21. apr. 2026.

Störf þingsins.

[13:38]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Hæstv. forseti. Fíkniefnin flæða nú inn í landið eiginlega sem aldrei fyrr. Það er ljóst að hér er um þaulskipulagða starfsemi að ræða, brotastarfsemi sem er knúin áfram af skipulögðum glæpasamtökum. Þetta fær mig til að hugsa um það að á árunum 2017–2021 fluttu þingmenn Miðflokksins við hverja einustu fjárlagaafgreiðslu fjármagnaðar tillögur í smáatriðum um það hvernig hægt væri að bæta löggæslu á landamærum, bæði tollgæslu og lögreglu. Í stuttu máli sagt þá var enginn flokkur á Alþingi sem tók undir þessar tillögur okkar. Ég ítreka að þær voru vandaðar, þær voru fjármagnaðar, þær voru vel fram settar. Við sjáum núna afleiðingarnar vegna þess að m.a. það sem fram hefur komið — á sínum tíma þegar við lögðum þetta fram lögðum við t.d. til að búnaður yrði endurnýjaður, þá fyrir 6–9 árum síðan, til þess að röntgenskoða gáma, sem er ekki gert. Þá var búnaðurinn sem var til í landinu þegar úr sér genginn og úreltur fyrir 6–9 árum. Og núna, frú forseti, erum við að horfa á afleiðingar þessa sinnuleysis. Við erum að horfa á það að verið er að flytja inn efni í stórum stíl sem eyðileggja líf og framtíð ungs fólks og fjölskyldna þess. Við getum ekki látið sem ekkert sé í þessum efnum. Ríkisstjórnin verður að hysja upp um sig í þessum efnum. Það eru til peningar. Það kostar 600–700 millj. kr. að lágmarki að koma upp góðum röntgentækjum. En það er ekki eftir neinu að bíða. Við verðum að stöðva þessa forsmán.