Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Fjölskyldufólk með tvö börn á leikskóla í Kópavogi greiðir 450.000 kr. meira í leikskólagjöld á ári en í Reykjavík fyrir 40 tíma leikskólaviku. 40 tímar á viku, það eru átta klukkustundir á dag. Nýlega las ég grein eftir einstæða móður, sjúkraliða, sem búsett er í Kópavogi með tvö börn á framfæri, annað í leikskóla og hitt í grunnskóla. Vinnan hennar er þess eðlis að hún þarf að mæta klukkan átta. Vinnan hennar er ekki sveigjanleg. Hún á ekki bakland sem getur sótt börnin fyrr á leikskóla og þarf að uppfylla vinnuskyldu sem felur í sér vaktir. Þessi kona greiddi áður en hún flutti í sveitarfélagið 34.000 kr. á mánuði en greiðir 42.000 kr. á mánuði fyrir jafn langan vistunartíma í Kópavogi. Á meðan greiða foreldrar sem búa við sveigjanlegan vinnutíma og sterkt bakland ekki neitt fyrir vistun í sex klukkustundir á dag eða 30 tíma á viku.
Ég spyr: Er það réttlætanlegt að þeir foreldrar sem búa ekki við sveigjanlegan vinnutíma og hafa ekki sterkt bakland beri byrðarnar af því að koma börnum inn á leikskóla? Samfylkingin vill að þak verði sett á leikskólagjöld og tryggja 100% systkinaafslátt. Og já, Samfylkingin vill lögfesta leikskólastigið. Það felur í sér aðkomu ríkisins að leikskólamálum rétt eins og á öllum hinum Norðurlöndunum. Af hverju ekki hér? Ég styð þessar áherslur og fagna því að loksins, loksins sé kominn alvörusamstarfsvilji milli ríkis og sveitarfélaga, vilji til að létta undir með og bæta daglegt líf ungs fólks og fjölskyldna. Gleymum því ekki að það er okkar hlutverk, hér og í sveitarstjórnum, að standa vörð um þá foreldra sem hafa ekki bakland, foreldra sem eru einstæðir, foreldra sem ekki hafa háar tekjur eða sveigjanlegan vinnutíma og auðvelda þeim daglega lífið, ekki að láta þá bera byrðarnar.