157. löggjafarþing — 98. fundur,  21. apr. 2026.

Störf þingsins.

[13:42]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Við þurfum að einfalda regluverk á Íslandi. Í því sambandi verðum við að horfa á íslenska hagsmunagæslu, ekki bara reglurnar sjálfar, þar sem ákvarðanirnar eru raunverulega teknar og forseti, já, ég er að tala um hagsmunagæslu Íslands á vettvangi Brussel, Evrópuþingsins og framkvæmdastjórnar og ekki bara það sem pólitíkin þarf að segja heldur líka það sem þarf að koma frá atvinnulífinu, verkalýðshreyfingunni og hagsmunasamtökum, t.d. í orkugeiranum, sem mér finnst nærtækt dæmi. Reglur á íslenskum orkumarkaði eru mótaðar af Evrópusambandinu. Það er staðreynd. Þær eru mótaðar út frá heildarhagsmunum stóra samtengda markaðarins á meginlandinu. En hvar koma hagsmunir okkar sem fjarlægs eyríkis inn og á hvaða tímapunkti gerist það, ef það þá yfirhöfuð gerist?

Fyrir helgi var ég að ræða þessi mál, m.a. við kollega mína á norrænum vettvangi, ekki síst Norðmennina þar sem þeir hafa aðra sögu að segja en við. Þeir leggja mikla áherslu á að vera mjög snemma og tímanlega inni í umræðunni, greina þróunina og vera til staðar. Ef eitthvað er þá er íslensk hagsmunagæsla miklu meira krefjandi sem fjarlægs eyríkis. Þar erum við því miður að mörgu leyti sofandi á verðinum. Það sem við þó reynum að gera og okkar umleitanir eru hreinlega mjög krefjandi og áskorun fyrir fámenna þjóð. Við vitum hins vegar að fulltrúar Landsvirkjunar reyna að koma vel inn í og tímanlega en betur má ef duga skal. Þau sem óttast fullveldisframsal til Evrópusambandsins verða að átta sig á því að gullhúðun á Evrópuregluverki og skortur á íslensku fyrirsvari er bein afleiðing af því að við höfum ekki sinnt hagsmunagæslu okkar sem skyldi. Við eigum frábæra fulltrúa íslenskra ráðuneyta sem sinna sínu af krafti. En það er ekki nóg. Ég spyr: Hver er ógnin af því að eignast þingmenn á Evrópuþinginu, íslenskan fulltrúa í framkvæmdastjórninni? (Forseti hringir.) Þetta er spurning um íslenskt fullveldi og það vil ég vilja tryggja.