Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í um tólf ár bjó ég í Kaupmannahöfn. Núna bý ég í heimabæ mínum Kópavogi og get því eins og mörg borið saman líf mitt í Evrópusambandinu og hér á Íslandi. Ég skoðaði á þeim tíma íbúðir í Kaupmannahöfn og fékk á borðið fyrirsjáanlegt lán þar sem, hefði ég greitt af því, lánið hefði raunverulega lækkað. Þegar ég keypti hins vegar eignina í Kópavogi með manninum mínum í fyrra þá tók ég lán sem ég greiði samviskusamlega af um hver einustu mánaðamót eins og þúsundir Íslendinga gera. En hvað gerist? Við sjáum lánið hækka og hækka enn meira. Það, virðulegur forseti, er galið. Þess vegna finnst mér við eiga skilið að sjá hvað okkur býðst með samningi við Evrópusambandið, til að vita: Þarf þetta raunverulega að vera svona? Í Kópavogi sem dæmi eru tækifærin úti um allt. Ég sé möguleika á enn frekari uppbyggingu hvert sem ég lít, hvort sem það er að bæta þjónustu við börn og ungmenni, uppbygging íþróttamannvirkja, að bæta net hjóla- og göngustíga, öruggari vegir eða öflugri almenningssamgöngur. Við getum stórbætt útivistarsvæðin okkar eða styrkt stoðir skólakerfisins. Þetta eru allt mál sem við í Viðreisn leggjum mikla áherslu á að ná fram. En þegar við sem dæmi greiðum 40 milljarða, 40.000 milljónir, á hverju einasta ári í að viðhalda stöðugleika krónunnar þá eru það um leið peningar sem við erum ekki að setja í uppbyggingu þessara innviða.
Nú nálgast kosningar, bæði kosningar til sveitarstjórna en sömuleiðis þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið og að mínu mati þurfum við að horfa á þær í samhengi við hvora aðra. Ég vil sjá hvað innganga gæti þýtt fyrir sveitarfélögin, fyrir fólkið í landinu og fyrir samfélagið okkar í heild. Við eigum það skilið.