157. löggjafarþing — 98. fundur,  21. apr. 2026.

Störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Enn og aftur ætla ég að ræða samgöngumálin við Vestmannaeyjar. Það kemur kannski engum á óvart. Svo ótrúlegt sem það er þá er staðan nú verri en nokkru sinni áður hvað varðar siglingar farþegaferjunnar Herjólfs til Vestmannaeyja. Herjólfur siglir á annarri skrúfunni til Þorlákshafnar tvisvar á dag og tekur sú sigling fjórar klukkustundir. Það er oft engin skemmtisigling, frú forseti, og fólk forðast það ef nauðsyn kallar ekki til slíkra ferðalaga. Horfurnar eru ekki góðar, frú forseti, því að ekki er fyrirséð að dýpkun í Landeyjahöfn taki minna en eina eða jafnvel tvær vikur til viðbótar ef veður haldast þokkaleg. Slíkt ástand hefur mikil áhrif á rekstur gisti- og veitingahúsa, á öll fyrirtæki og fyrirtækjarekstur og alla þá sem reka þjónustu við ferðamenn í Vestmannaeyjum og síðast en ekki síst á daglegt líf allra íbúa þarna. Sumarmánuðirnir eru sá tími ársins sem ferðaþjónustufyrirtækin reiða sig á að samgöngur séu í lagi við meginlandið. Þá hafa gisti- og veitingastaðir og ýmsir ferðaþjónustuaðilar tækifæri á að afla sér tekna sem vinnur upp þá ládeyðu sem oft hefur einkennt viðskiptin þegar vetrarveðrin hamla góðum samgöngum við Vestmannaeyjar. En í vor er staðan sú að afbókanir hrannast upp hjá öllum þessum aðilum, ekki bara fyrirtækjum heldur fólkinu sjálfu sem heldur kannski fermingarveisluna og það vantar helminginn af gestunum, að ógleymdum þeim áhrifum sem það hefur á veitingar og gistingar og allt hvað eina. Það eru stórar helgar fram undan. Puffin Run er eftir tíu daga. 1.800 manns eru væntanlegir til Eyja. Enginn veit hvort þetta geti farið fram með þátttöku þessara aðila. Óvissan ræður ríkjum, frú forseti. Við þurfum öflugra dæluskip og það þarf að vera til reiðu. Við þurfum að ljúka rannsóknum og ljúka framkvæmdum við Landeyjahöfn þannig að hún geti sinnt hlutverki sínu.

Frú forseti. Að lokum: Svörin. (Forseti hringir.) Íbúar og fyrirtæki og ferðamannasamtök í Vestmannaeyjum hafa sent endalaus bréf til hæstv. innviðaráðherra og hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) um svör hvað varðar samgöngur við Vestmannaeyjar en þeir fá engin svör. Hvernig væri að láta svo lítið, (Forseti hringir.) frú forseti, að svara þessu fólki?