Störf þingsins.
Frú forseti. Vegir og vegaframkvæmdir eru sígrænt umræðuefni hér í ræðustóli Alþingis. Vegir eru lífæð samfélaga og grundvöllur að búsetu og lífsgæðum íbúa. Síðustu misseri hefur þessi umræða þó margsinnis dúkkað upp í tengslum við skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og að það eigi að eyða öllum þeim peningum í uppbyggingu vegakerfisins.
Frú forseti. Vandinn er þríþættur. Fyrir það fyrsta munu þessar skatttekjur aldrei skila sér í þær framkvæmdir sem búið er að lofa. Í öðru lagi er kílómetrinn orðinn allt of dýr í framkvæmd sökum íþyngjandi regluverks til að hægt sé að ráðast í almennilega og hraða uppbyggingu á vegum. Í þriðja lagi veit ríkið einfaldlega ekki best, langt því frá, hvar þessum fjármunum öllum verður best varið. Það vita íbúarnir sjálfir og sveitarstjórnarfulltrúar á hverju svæði. Sveitarstjóri Rangárþings eystra velti í þessu samhengi á dögunum upp þeirri hugmynd í viðtali við Morgunblaðið hvort sveitarfélög fengju eitthvað af þessum fjármunum og gætu þannig sjálf forgangsraðað til þeirra vegaframkvæmda sem nauðsynlegt er að ráðast í í nærsamfélaginu. Í Rangárþingi eystra eru margir kílómetrar af malarvegum og vegum sem illa er við haldið. Í sveitarfélaginu er næstlengsti skólaakstur skólabíla á landinu og börnin skrölta þessa vegi a.m.k. tvisvar á dag.
Frú forseti. Þetta ætti að skoða. Sveitarstjórnir ættu að hafa kost á að forgangsraða fjármunum til vegaframkvæmda ef þær kjósa svo og óska eftir.