Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Við ræðum eðlilega alþjóðamál alla daga hér í þinginu og ég ætla að ræða þau hér einnig. Við í Framsókn höfum verið miklir stuðningsmenn þess sem við höfum áorkað á síðustu áratugum, lýðveldið Ísland; gert 35, að mig minnir, fríverslunarsamninga við lönd hringinn í kringum hnöttinn, þar á meðal lönd eins og Kína og Indland, umfram önnur lönd og haft þar af leiðandi forskot í okkar markaðssetningu á vörum frá landinu.
Ég hef líka verið að horfa til þess við hverja við ættum í raun að vera að tala hvað mest. Við höfum oft talað um Norðurlöndin, eðlilega. Við höfum orðið fyrir því að sjá alla ásókn, í dag Bandaríkjanna, í norðurskautssvæðin, Ísland og Grænland ekki síst, Færeyjar. Evrópusambandið er náttúrlega allt búið að vera þar mjög lengi, Kína, Indland og fleiri lönd. Þess vegna held ég að það væri skynsamlegt, og ég tók eftir grein um daginn sem Eldur Ólafsson, athafnamaður á Grænlandi, og fleiri skrifuðu, um hvort við ættum ekki að horfa til þess að efla samstarf vestnorrænu ríkjanna, hreinlega útvíkka þann fríverslunarsamning sem gengur hvað lengst, sem er Hoyvíkursamningurinn við Færeyjar, sem er 20 ára þessi misserin, og vestnorræna samstarfið við vestnorrænu ríkin þar sem við höfum haldið á kyndlinum hvað harðast þegar við erum í Norðurlandasamstarfi, að ýta miðju svæðisins hér út á Atlantshafið; til Færeyja, til Grænlands, til Íslands, til landa sem lifa sambærilegu lífi, hvort við ættum ekki að vera að horfa til þess að búa hér til vestnorrænt efnahagssvæði með fríverslunarsamningum milli þessara þriggja ríkja eða bara eitt svæði. Þá gætum við, þessar litlu þjóðir sem byggja svipaða menningu, svipað auðlindahagkerfi, tekist á við stórveldin sem myndu örugglega vilja gera fríverslunarsamninga við þetta svæði.