dagskrá þingfundar.
Frú forseti. Það er óhjákvæmilegt að gera athugasemd við þá dagskrá sem hæstv. forseti býður þinginu upp á í dag. Fjölmörg mál hæstv. ríkisstjórnar bíða ókláruð og yfir öllu vomir Evrópusambandsumsókn Viðreisnar sem hæstv. ráðherrar fást ekki einu sinni til að bregðast við og veita svör um eins og hv. þm. Hildur Sverrisdóttir dró mjög vel fram hér áðan í umfjöllun um störf þingsins. En að við þessar aðstæður skuli hæstv. forseti ákveða að setja innleiðingu hælisleitendapakka Evrópusambandsins á dagskrá þingsins sætir furðu. Það á með öðrum orðum að ráðast í aðlögunina strax og það á sviði sem er eitt hið alumdeildasta sem hægt er að hugsa sér. Það á að ráðast í aðlögunina strax áður en fólk fær að segja sína skoðun um hvort það vilji halda áfram aðlögun að Evrópusambandinu.