lokun Foreldrahúss.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir fyrirspurnina. Það er rétt að sú þjónusta sem veitt er í Foreldrahúsi er ekki heilbrigðisþjónusta í skilgreiningu laga, eins og þingmaðurinn nefndi, heldur ráðgjöf; fjölskyldu- og uppeldisráðgjöf og ýmis þjónusta, sjálfsstyrking fyrir foreldra, námskeið og fleira. Þetta er að sjálfsögðu allt afar mikilvæg þjónusta. Eins og þingmaðurinn nefndi þá byggja rekstrartekjur á ýmsu en ég hef skilið það svo að að auki sé tekið tímagjald hjá notendum. Samkvæmt heimasíðu samtakanna er gjaldið í kringum 20.000 kr. Nú þegar ekki er um heilbrigðisþjónustu að ræða er ekki gerður samningur á vegum heilbrigðisráðuneytisins en með þetta úrræði, eins og fleiri, hefur ráðuneytið styrkt slíka þjónustu því að hún er auðvitað álitin mikilvæg eins og bent er á. Það er þannig að Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála gerði þarna úttekt 2024 og benti á ýmislegt sem þyrfti að laga. Eins og ég segi, þar sem málið er ekki á mínu borði, þá hef ég ekki fylgt því eftir. Ég tel að þetta sé þjónusta sem þarf að veita. Hvaða fjármuni hefur verið farið fram á þekki ég ekki en mér fannst ég sjá haft eftir barnamálaráðherra að sú upphæð sem farið var fram á hefði hækkað töluvert og verið 100 milljónir. Slík upphæð er auðvitað ekki hrist fram úr erminni en það er barnamálaráðherra sem ber ábyrgð á þessum málaflokki. (Forseti hringir.) Þetta er þjónusta sem þarf að veita en nákvæmlega hvar og hvernig — þar getur að sjálfsögðu margt komið til greina.