157. löggjafarþing — 99. fundur,  22. apr. 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB.

[15:09]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Herra forseti. Fyrir liggur lögum samkvæmt að boðuð þjóðaratkvæðagreiðsla verður ekki bindandi heldur ráðgefandi fyrir ríkisstjórnina. Í því ljósi spyr ég hæstv. dómsmálaráðherra: Ef svo fer að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst verði nokkuð jöfn en þó þannig að fleiri segi nei við því að hefja viðræður við Evrópusambandið að nýju, kemur þá, að mati hæstv. ráðherra eða ríkisstjórnarinnar, til greina að hefja engu að síður viðræður að nýju? Eða getum við treyst því að ef meiri hlutinn segir nei verði þar við setið og ríkisstjórnin fari að einbeita sér að öðrum hlutum en Evrópusambandsaðild?