þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna. Þjóðaratkvæðagreiðsla snýst um það að leita eftir því hver afstaða íslensku þjóðarinnar er. Ég er ofboðslega stolt af því að það sé sú leið sem farin er í þessu máli og mér finnst sérstakt að skynja það hér í þessum þingsal, og raunar aftur og aftur, að það virðist vera sem hluti þingheims eigi erfitt með þá hugmynd, eigi erfitt með þá hugmyndafræði að leita til þjóðarinnar. Auðvitað er það þannig og það er alveg skýrt í mínum huga að við munum virða niðurstöðu þjóðarinnar. Þess vegna erum við að leita álits hennar. Ég er líka þeirrar skoðunar að þjóðaratkvæðagreiðsla sé besta verkfærið sem við höfum í höndunum til að þroska umræðuna, fá fram sjónarmið um kosti og galla, sjónarmið um hverju þetta breytir. Ég er sjálf þeirrar skoðunar, og þar ætla ég að leyfa mér að tala sem mamma, að ég vil að dætur mínar fái að sjá á spilin um það hvaða framtíð bíður þeirra innan Evrópusambandsins versus það að vera utan þess. Við höfum talað um það að við ætlum að leita til þjóðarinnar í tvígang, fyrst um það hvort við viljum halda áfram með þessar viðræður, fara í viðræður, sjá einfaldlega hvað þetta myndi þýða og leggja síðan samninginn undir þjóðina aftur og auðvitað verður það þjóðarinnar að ákveða. Það er engin ríkisstjórn sem tekur svona ákvörðun. Ég er reyndar þeirrar skoðunar að þau sem eru mótfallin inngöngu ættu engu að síður stolt að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu og stolt að tala fyrir því hversu falleg hugmyndafræði það er að leita til þjóðarinnar um hennar afstöðu.