þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB.
Forseti. Það er gott en þetta er alveg skýrt; meiri hlutinn mun ráða, hvernig sem hann verður. Ég get líka tekið undir með hæstv. ráðherra að það eigi allir að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu.
En mig langaði að spyrja að öðru hérna í seinni fyrirspurn þar sem málefni kosninga heyra stjórnarfarslega undir dómsmálaráðherra. Nú liggur fyrir að í umsögn frá landskjörstjórn er bent á að fyrirhuguð dagsetning geti haft í för með sér ákveðna erfiðleika við undirbúning og bent á að það sé ekki yfir vafa hafið að spurningin standist íslensk lög þess efnis að spurning í þjóðaratkvæðagreiðslu uppfylli þau skilyrði að vera m.a. skýr, skiljanleg og hlutlaus og heppilegt sé að hægt sé að svara spurningunni með nei eða já. Í þessu ljósi vil ég spyrja: Telur ráðherra ekki mikilvægt að Alþingi bregðist við þessum athugasemdum? Og ef Alþingi gerir engar breytingar á fyrirliggjandi tillögu, telur hæstv. ráðherra ekki að ráðuneyti hennar verði sett í snúna stöðu, að þurfa að undirbúa kosningu sem er ekki yfir vafa hafið að standist lög og sennilega ekki heldur viðmið Feneyjanefndar Evrópusambandsins?