þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB.
Virðulegi forseti. Það kom þingsályktunartillaga inn á þetta þing. Þingið er með málið til meðferðar og fær það til vinnslu og ég treysti þinginu fullkomlega til að vinna þetta mál með góðum og faglegum hætti, rétt eins og ég treysti íslensku þjóðinni fullkomlega til að svara já eða nei-spurningu um það hvort hún vilji halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Þannig sé ég þetta. Mér finnst þetta vera frekar einföld já eða nei-spurning. Ég get mjög vel skilið að skoðanir séu skiptar en ég er ekki þeirrar skoðunar að þessi spurning sé sérstaklega flókin eða þurfi að vera sérstaklega flókin. Hún snýst um að fá að vita hvað stendur til boða og mér finnst fallegt og góður bragur á því að við kjósum að sumarlagi og tek ekki undir sjónarmið þess efnis að það sé sérstaklega „próblematískt“ að skjótast á kjörstað í lok sumars.